Ég hef áður bloggað um tímann frá því maður kemur heim úr vinnunni og þangað til börnin fara að sofa......tímann sem einhverstaðar var kallaður úlfatími!
Það gengur oft mikið á, heimalærdómur, út að leika, elda matinn, borða, ganga frá, baða, hátta, lesa.......! Ef maður er ekki mjög skipulagður getur vinnudagurinn lengst fram til hálf tíu á kvöldin áður en maður veit af.
Las í dag viðtal við þekkta bissneskonu hér í bæ sem vinnur mikið utan heimilis. Hún kemur ekki heim fyrr en klukkan 7 á kvöldin. Um miðjan daginn hefur hún þó farið til einkaþjálfarans síns sem hún er búin að vera hjá í mörg ár.
Hún á eitt barn sem er tíu ára en er svo heppin að vera með háskólapar á heimilinu sem sér um heimanám barnsins sem og eldamennskuna.
Fjölskyldan notar svo kvöldin til að spila og gera eitthvað skemmtilegt....
Reynum svo að halda því fram að peningar geti ekki veitt smá hamingju!
2 hafa lagt orð í belg