Það má nú kannski segja að ekkert ilmar betra en birki sem nýlega hefur rignt á!
Ekki var rigningunni fyrir að fara í Þorlákshöfn um helgina þegar ég og drengirnir skelltum okkur til Rebekku í berjamó. Þar er heldur ekki langt að fara út í móann því við tíndum berin rétt fyrir utan lóðamörkin h´já henni, svo stutt var að fara heim í nýlagað kaffi og vöfflur!
Ekki amalegt það!
Spurning hvort Bergljót í mötuneytinu verður búin að baka þegar við komum inn á útivistardögunum.....
Enginn hefur lagt orð í belg!