Rakel bloggar

 

Búðarferð

Ég fór í Rúmfatalagerinn áðan til að kaupa mér kerti fyrir jólin (og allt hitt sem maður freistast til að kaupa þar af því að það er svo ódýrt).

Þetta er svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir það, að nú tekur þar á móti manni öryggisvörður þegar maður fer inn í búðina. Hann skimar þig alveg út - og ég fyllist alltaf þessari hræðilegu þjófstilfinningu fyrir vikið. Það lá við að ég labbaði með útréttar hendur um alla búðina til að hann héldi ekki að ég væri að stela!

Ég ætlaði að kaupa hvít kerti - en lét beisuð duga þar sem hin voru ekki til.

Þegar ég kom að kassanum sá ég að eitt kertið var brotið. Stúlkan sagði mér að sækja bara nýtt inn í búð!! Ég horfði í angist á öryggisvörðinn og sagði honum að ég þyrfti að ná í eitt kerti inn í búðina (45 krónur) og bað hann að geyma pokann minn á meðan (svo hann héldi nú ekki að ég myndi fylla hann á útleiðinni).

Þegar ég kom aftur að kertarekkanum sá ég að í millitíðinni var búið að fylla á hvítu kertin!

Ég labbaði til öryggisvarðarins og sagði að nú ætlaði ég að flækja málin aðeins og skipta út beislituðu kertunum í pokanum mínum fyrir hvít!

Málið var auðsótt og ég lyfti pokum á víxl þar til allt var á réttum stað - og ég og öryggisvörðurinn vorum nokkuð sátt!

Svo fór ég að spá í það hverju fólk væri að stela þarna - þar sem ódýrustu vörurnar fást!!!!

Það var annað með konuna sem var verið að dæma fyrir að stela ausum og skeiðum ýmiskonar í búð hér í bæ!

Sussususs!


Leggja orð í belg
4 hafa lagt orð í belg
30.11.2007 21:01:50
Ég er skíthrædd við öryggisverði og hefði frekar keypt upp kertalagerinn en að hætta mér í samræður við þá!!
Þetta lagði Marta í belginn
30.11.2007 21:47:15
Hvenær stelur maður skeið og hvenær selur maður ekki skeið?
Það er málið.
Þetta lagði GHF í belginn
30.11.2007 22:39:01
Ég er eins og þið Marta, alltaf hrædd við öryggisverði. Er líka alltaf hrædd um að það detti kannski eitthvað ofan í poka hjá mér eða eitthvað svoleiðis og ég verði þjófkennd :( Var úti í London um helgina og við vorum tvisvar sinnum að skoða svona hitt og þetta í Boots og vorum hundeltar af öryggisvörðum búðarinnar á meðan. Ekki það skemmtilegasta ;)
Þetta lagði Sigurrós í belginn
02.12.2007 14:19:58
Hehe, ég kannast við þessa tilfinningu og er alltaf með sektarsvip á andlitinu þegar ég hitti öryggisverði, tollverði og svoleiðis lið þrátt fyrir að vera alltaf sárasaklaus ;)
Þetta lagði Bryndís í belginn