Rakel bloggar

 

Fimmta flugfreyjan

Nú á að fara að fækka flugfreyjum í millilandaflugi. Þar sem áður hafa verið fimm flugfreyjur verða nú fjórar. Rétt eins og þegar börn fæðast með sex tær og þeim er fækkað í fimm.

Við þetta á þjónustan um borð í vélunum ekki að skerðast að neinu leyti og álagið á flugfreyjurnar að sama skapi ekki að aukast. Surprised

Minnir svolítið á kjarasamning sem gerður var við kennara fyrir nokkrum árum. Þar var skólaárið lengt nokkuð og undirbúningstími kennslustunda styttur. Um leið voru launin okkar hækkuð.

Okkur og öðrum í landinu var svo talið trú um að við hefðum fengið launahækkun.

Hver fær ekki hærri laun fyrir meiri vinnu? Yell


Leggja or belg
4 hafa lagt or belg
06.03.2007 11:16:57
Hvers vegna heldur þú að ég hafi hætt að kenna :/
etta lagi Bryndís belginn
06.03.2007 18:57:28
Og segðu mér - er þetta allt annað og betra líf?
etta lagi Rakel Guðmundsdóttir belginn
06.03.2007 19:25:42
Mín mánaðarlaun lækkuðu um 6000 kr. í þessum kjarasamningum og samt hélt ég áfram....sumir selja sig mjög ódýrt !
etta lagi Kristín Ármanns belginn
08.03.2007 18:59:15
Þetta er alltaf spurningin um að hrökkva eða stökkva. Þegar maður er láglaunamaður þarf maður alltaf að vera að líta í kringum sig eftir betri kjörum. Reyndar er rosalega gott að vera í öruggri stöðu sem erfitt er að henda manni úr og er það stærsta atriðið sem heldur í svo marga kennara þó þeir séu ekki á sæmandi launum!
etta lagi Sverrir Guðmundsson belginn