Engar fréttir góðar fréttir, lífið gengur sinn vanagang hérna þessa dagana. Er á leiðinni að fá nýja(r) samstarfskonu(r) á næstu dögum þar sem Sigurrós er að fara í barneignarfrí. Man hvað þetta var notaleg tilhugsun að eiga barn á þessum tíma - stutt í sumarfrí og svo áframhaldandi frí á haustdögum! Gott framundan hjá þér Sigurrós
Elmar stendur sig vel í hegðunarátakinu sem hann er í. Hann er svolítið klókur og veit fullvel að við takmörkum límmiðagjöfina við það hvernig gengur í fataklefanum á leikskólanum. Hann var því fljótur að minna mig á það þegar hann tók vægt kast í Hagkaup í gær..."límmiðarnir eru ekkert um búðir - bara leikskólann"
Það væri nú gaman að vita hverjir eru að lesa bloggið mitt þessa dagana? Hvernig er með kvittkvitt!?
7 hafa lagt or belg