Rakel bloggar

 

Ekki alltaf jólin.....

Aron og félagar fóru austur á Eskifjörð um helgina til að keppa í fótbolta. Þeir unnu leiki við Þór, Hött og Völsung og kepptu svo við HK um að komast í úrslitaleikinn í Íslandsmeistaramótinu.

Okkar mönnum hefði nægt jafntefli til að svo hefði farið....en lukkan var hinum í hag og þremur mínútum fyrir leikslok skoruðu HKmenn markið sem kom þeim áfram! Frown

Úff, gott að ég var ekki á staðnum! Yell

Fyrsta heila vinnuvika vetrarins framundan!!


Leggja orð í belg
1 hefur lagt orð í belg
28.08.2006 10:34:00
Hehe, stundum er erfitt að vera fótboltamamma. Til hamingju með gott gengi samt og þú getur sagt Aroni að frænka hans hafi spilað til úrslita í kvennaflokki en tapað í vítaspyrnukeppni ;)
Þetta lagði Bryndís í belginn