Ættingjar og vinir nær og fjær! Gleðilega páska!
Við höfum haft það ljómandi gott í páskafríinu, sofið út, verið mikið til heima við og undirbúið veislumat á hverjum degi!
Mamma og pabbi komu suður og við fórum í fermingarveislu hjá Mörtu á skírdag. Á föstudaginn langa keyrðu þau svo norður á Hólmavík til Sverris og Iggu en þau komu heim með 5. fjölskyldumeðliminn hana Guðnýju litlu, daginn áður.
Á föstudaginn langa fór Elmar í gistiheimsókn til ömmu sinnar og daginn eftir bónuðum við og þrifum bílinn en það var einmitt á verkefnalista leyfisins og því ekki seinna vænna! Það var bongóblíða hér í Fossvoginum og vel hægt að sitja í sólinni á pallinum!
Dagurinn í dag hófst á hefðbundinn hátt með páskaeggjaleit drengjanna - þeir hafa reyndar óskaplega litla þolinmæði í svona leiki og spursmál hvort fyrirhöfn foreldranna er þess virði ;) Elmari fannst ég gefa "lélegar vísbendingar" og þeim eldri fannst eggin falin á "geðveikt erfiðum stöðum". Aron er reyndar kominn með reynslu og leitar kröftuglega með tilheyrandi göggum og góli!
Ásta tengdamamma kom í mat til okkar í kvöld - við elduðum hreindýr með tilbehör - og Sölvi fór svo með henni í Gullsmárann til að gista.
Í eftirmat ætluðum við að borða lífrænan ananas (með rjóma) en hann stóðst ekki væntingar..... æ kannski maður fái sér ööööörlítinn bita af páskaeggi númer 5 ;)
4 hafa lagt orð í belg