Þegar ég var lítil var sungið "video killed the radio star".
Sms - in og tölvupóstbréf hafa með tímanum komið "í stað" sendibréfa........eða þannig!
Núna held ég að fésið sé að gera út af við bloggið!
Undanfarið hefur það allavega komið í veg fyrir öll skapandi skrif hjá mér og kannski hjá mörgum af mínum daglegu bloggrúntsvinum!
Léleg þróun - eða hvað!
Hún tengdamóðir mín síunga á annars 80 ára afmæli í dag! Hún og Þrándur buðu til veislu hér heima hjá okkur á sunnudaginn og fögnuðu sameiginlegum 120 árum!
5 hafa lagt orð í belg