Hef hreinlega ekki haft tíma í blogg undanfarið - það er svona að búa í Reykjavík! Það hefur nefnilega verið full vinna að fylgjast með borgarmálunum og uppfæra allar landsins samsæriskenningar, hvort sem þær tengjast stjórn borgarinnar, fatakaupum stjórnmálamanna eða jarðarför skáksnillings.
Fréttir af þessu öllu hafa verið alveg hreint með ólíkindum - eins og lélegt handrit að bíómynd. Samt fékk ég nú verulegan kjánahroll eftir kvöldfréttatímann þar sem sýnt var frá unglingunum sem hrópuðu ókvæðisorð og böðuðu út öllum öngum á pöllum Ráðhússins - æ ég veit það ekki - þögul mótmæli hefðu virkað alveg jafn vel held ég! Hvað erum við bættari með því að einhver hrópi Villi tilli!!!
En að öðru - síðasta færsla mín var um inngöngu mína í kórinn. Öll vikan fór svo í að efast um að ég hefði verið að gera rétt! Ekki svo að skilja að mér litist illa á kórinn sjálfan - enda með eindæmum vel tekið á móti manni þar - en tíminn sem fer í þetta verður mikill, auk þess sem mig langar svolítið til að gera mikið úr söngtímunum mínum í vetur. Síðasta æfing var samt eiginlega of skemmtileg til að ég tími að hætta! Þetta kallast eiginlega að gleypa heiminn - en við sjáum hvað setur.
Ég fór sem sagt í þriðja söngtímann í dag, fékk lag til að æfa mig á heima og aflaði mér upplýsinga um hvað þarf að gera til að taka fyrsta stig í söng. Þá þarf ég að kunna 8 lög, syngja 4 fyrir framan prófdómara og sækja tónfræðitíma. Gæti nú verið gaman.....jafnvel þó að stefnan sé alls ekki sett á Scala!
Nú er ég sem sagt gólandi alla daga - í ævistarfinu fæ ég svo mín tækifæri! Nemandi minn (6 ára) sagði við mig einn daginn: Þú hefðir kannski frekar átt að verða söngkona Rakel- þú hefur bara ansi góða söngrödd!
Verst að hafa ekki fattað þetta áður en ég fór í Kennó! :)
6 hafa lagt or belg