Sagan hófst fyrir ári síðan. Tengdamóðir mín hafði verið að lýsa fyrir mér ljósi sem hún sá í auglýsingabæklingi og langaði til að eignast. Þar sem jólin voru í nánd sá ég mér leik á borði að gefa henni ljósið í jólagjöf.
Ég fór á stúfana og fann ljós sem passaði við lýsinguna - fannst það reyndar alls ekki fallegt - en það hafa nú ekki allir sama smekk! Mér fannst við hafa leyst gafamálin farsællega með því að gefa eitthvað sem hún örugglega vildi, en kæmi samt á óvart því ég hafði alls ekki látið hana finna að ég hefði krækt í ljósið!
Svo kom að aðfangadegi og þegar ljósið kom upp úr pakkanum leyndi furðusvipurinn sér ekki á tengdamóður minni - þetta var alls ekki ljósið sem hún hafði séð í umræddum bæklingi!!
Ljósinu var skilað fyrir innleggsnótu því óskaljósið var uppselt. Tíminn leið og aldrei kom ljósið. Innleggsnótan var orðin upplituð þegar dag einn núna í desember að við sjáum að óskaljósið litla var komið aftur í búðina.
Við fórum strax af stað - og komumst þá að því að ljósið passaði engan veginn við íbúð tendamóðurinnar en myndi smellpassa hjá okkur í Ljósalandinu! Úr varð að ég keypti af henni innleggsnótuna og eignaðist ljósið litla.
Í gær átti svo að setja ljósið upp, en það var sama hvernig við snerum því og hölluðum að það var svo rammskakkt og bogið að raunalegt var á að horfa.
Ég fór því eina ferðina enn í búðina og sagði mínar farir ekki sléttar. Afgreiðslumaðurinn komst að hinu sama - ljósið var kengbogið.
En viti menn - ljósið er mjög líklega uppselt í búðinni!
Nú er spurningin hvort ég þarf að bíða í eitt ár enn eða hvort afgreiðslumaðurinn finnur ljós á lagernum. Ég fæ að vita það á morgun!
2 hafa lagt orð í belg