Að loknum foreldaviðtölum er er almennt allur vindur úr kennurum! Þar sem heimilisfólkinu fækkaði allverulega fyrir helgina er lífið hér algjört letilíf þessar stundirnar!
Við sváfum til 9 í morgun og fórum ekki á fætur fyrr en löngu eftir hádegi. Sölvi fór þá í heimsókn til vinar síns þannig að ég varð eftir með eitt barn....sem er náttúrulega ekki neitt!!!!
Við fórum í göngutúr í Fossvoginum - sá stutti í sínum versta skapham.....
Elduðum svo svínakódilettur og höfðum kósíkvöld!
Enginn hefur lagt orð í belg!