Rakel bloggar

 

Ævistarfið

Eftir brösugan dag í ævistarfinu þá skellti ég mér í leikfimi svona til tilbreytingar! Eins og á sama tíma í fyrrahaust er ég að gera mér grein fyrir því að líklega fúnkerar maður ekkert eðlilega í ævistarfinu nema hreyfa sig hressilega...og þá meina ég eitthvað annað en sussfingurinn!

Þegar við Elmar komum heim var veðrið svo yndislegt að við fórum í góðan göngutúr í Fossvoginum. Þar eigum við orðið vísa staði til að stoppa á og þegar maður er þriggja og hálfs árs er engin leið að sleppa úr stöð! Það þarf að setjast á þennan bekk, taka æfingar á tækjunum, róla sér á skólalóðinni og núna í haust að tína rifsber á einskismannslandinu. Við dóluðum okkur í gegnum þetta í sólinni og það vantaði ekkert nema undirleikinn við lagið It's a wonderful world!! Cool

Víst ég gat rölt þetta með Elmari í dag hefði mig nú ekki munað um að ganga með Ómari í kvöld...var bara eitthvað svo asskoti lúin.....það er ævistarfið! Laughing


Leggja orð í belg
3 hafa lagt orð í belg
27.09.2006 10:54:16
já það er gott að rölta í góða veðrinu. Nenni ekki að fara í skipulagða leikfimi. Gekk með soninn í kerru úr Nauthólsvík og vestur fyrir flugvöll í blíðunni í gær, golan var köld á móti en sólin bara ansi heit í bakið á leiðinni til baka. Frábært að fá svona sumarauka, og einmitt gott að vera þá í "fríi" til að njóta hans.
Þetta lagði Unnur í belginn
28.09.2006 00:15:12
Ójá, Unnur svo er bara að koma strax með annað...þá lengist "fríið"!!
Þetta lagði Rakel Guðmundsdóttir í belginn
29.09.2006 23:19:47
Hljómar yndislega :) Rosalega hefur verið huggulegt hjá ykkur!
Þetta lagði Sigurrós í belginn