Rakel bloggar

 

Verslunarferð

Ef maður á bara stráka gæti maður hæglega sleppt því að fara með þá í verslanir fyrstu 13 árin. Fyrst af því að maður vill sleppa við það sjálfur og síðar af því að þeir vilja sleppa við það.

Ef versla þarf föt hef ég fengið að heyra "geturðu ekki bara valið þau sjálf"......jafnvel þó að fötin séu á þá!

Í dag tók ég unglinginn með mér í Kringluna til að athuga útsölurnar. Ég mátti lítið segja, ekki biðja um aðstoð og ekki lyfta of mörgum flíkum á loft. Honum finnst óþolandi þegar búðarfólkið byrjar að aðstoða......þá er eins og maður verði að kaupa eða opinbera sína skoðun - sem er það hræðilegasta!

Við lentum á góðum gaurum og fengum alla þá aðstoð sem við vildum. Maður fer aftur í búðir sem sinna manni vel. Síðast þegar ég keypti föt "sjálf" á unglinginn þá hoppaði afgreiðslustrákurinn sjálfur í allar flíkurnar til að hjálpa mér að finna réttu stærðina!

Þarna eru unglingarnir á heimavelli - ekki í ungbarnaverslunum og því síður í Húsasmiðjunni!

 

ps. Skelltum okkur svo á eina Bjorkvin peysu í lokin......betra að lúkka vel í unglingadeildinni!


Leggja orð í belg
5 hafa lagt orð í belg
28.07.2008 22:57:06
Njahh.. minn hefur nú ansi miklar skoðanir á fötum þó að hann sé bara sex ára.
Þetta lagði Marta í belginn
28.07.2008 23:28:12
Mín bara alltaf í búðum enda veðrið í dag til þess, það var reyndar fínt líka að labba niður Laugaveginn en það gerði ég. Svo verður ekkert meira af búðum enda hitabylgja framundan. Góða ferð austur og hafðu það gott í slotinu með fínu baðmottuna ;)s
Þetta lagði Særún í belginn
28.07.2008 23:54:28
Eins og sannri unglingsstúlku sæmir var ég alltaf til í fataleiðangra með mömmu (það voru (og eru) bara skóbúðirnar sem mér leiðast!).
Hins vegar gat ég orðið alveg galin þegar móðir mín byrjaði að kíkja inn í mátunarklefann til að gá hvernig passaði og ég ekki tilbúin! Þá var ég viss um að ALLIR í búðinni myndi sjá inn í klefann um leið ;)
Þurfti svo að passa mig að fá ekki hláturskast þegar ég varð vitni að nákvæmlega þannig atviki í fyrra, þ.e. unglingsstúlku að "snappa" á mömmu sína fyrir að vera að kíkja of snemma inn í mátunarklefann...
Þetta lagði Sigurrós í belginn
29.07.2008 01:01:04
Já og svo skiljum við mömmurnar bara ekkert í þessu öllusaman þar sem okkur finnst við bara flottastar ;)
Þetta lagði Rakel í belginn
30.07.2008 19:27:04
ég verð bara að segja söguna af henni Hörpu vinkonu minni: hún var með 14 ára son sinn í búð að kaupa buxur á hann, þau fundu einar sem honum fannst OK og var sendur inn í mátunnar klefa til að máta.
Harpa beið og beið og beið.. fannst hann dálítið lengi, svo hún kíkir inn í klefann og spyr hvernig gangi. Drengurinn situr þar á stól og spyr: hvað á ég að gera?
Ég hlæ alltaf jafn mikið þegar ég hugsa um þetta.
Þetta lagði Olga í belginn