Já, minnsti maður er orðinn fimm ára!!
Foreldrarnir glöddu hann á afmælisdaginn með því að gefa honum Turtels búning sem var vafinn utanum ritsafnið um Emil í Kattholti.
Búningurinn vakti ómælda lukku - sem bókin mun gera síðar - en um leið ýmis vandræði, sem við höfðum nú reyndar séð fyrir, enda þekkjum við okkar heimafólk!! Afmælisbarnið svaf í búningnum í nótt og þegar fara átti á leikskólann í morgun þurfti að beita fortölum til að fá hann úr honum. Eftir afneitun hans á foreldrum sínum og varanleg vinarslit í smástund, sætti drengurinn sig loks við að fara bara með "leiðbeiningarnar" með sér í leikskólann og skilja skjaldbökubúninginn eftir heima.
Seinna um daginn beið bréf á eldhúsborðinu...merkt okkur foreldrunum...... og minnsta manni. Hann opnaði bréfið spenntur og í því var nokkuð skemmtilegur "goggur" til að setja saman. Ég sá strax að um frumlega markaðssetningu á Ísaksskóla var að ræða, þar sem kostir skólans voru útlistaðir inni í goggnum - og minnsti neytandinn vildi ólmur prófa þetta fína dót sem hann hafði fengið í póstinum. Hann var strax ákveðinn að fara í þennan Ísaksskóla og brosti út undir eyru!
Það er samt ekkert auðvelt að vinna með gogga þegar maður er rétt orðinn fimm - pappírinn var stífur og ekkert spennandi kostir í boði í goggnum. Brosið hvarf því snögglega og hann lagðist flatur á gólfið með samanbitnar tennur og illskaðist - enda "sýndi ég honum ekki rétt hvernig átti að gera með goggnum"!!!!!!!!
Ég sá strax að hann er ekki alveg tilbúinn að fara í skóla, en hafði lúmskt gaman af að ímynda mér hvernig yrði unnið með hann í Ísaksskóla!! :)
4 hafa lagt or belg