Rakel bloggar

 

Ahahaha!

Nú má ég ekki ræskja mig.

Ég verð að vera bein í baki og með brjóstkassann út í loftið.

Ég þarf að anda þannig að neðri maginn fari út!

Ég byrjaði nefnilega í söngtímum í dag! Tímarnir eru fertugsafmælisgjöf frá Henríettum, sem ég er alltaf búin að vera að fresta að fara í síðan í haust. Ég tók svo á mig rögg og sendi tölvupóst í söngskólann Vox í fyrradag.......og fór svo í fyrsta tímann hjá Ingu Bachman í dag!!

Mér líst bara mjög vel á þetta og gaman væri ef framhald gæti orðið á. Hvernig er hægt að hafa svona gaman að því að anda ótt og títt í þrjátíu mínútur!!;)


Leggja orð í belg
3 hafa lagt orð í belg
10.01.2008 22:42:16
Þarf maður að fara að leggja inn pantanir fyrir stærri mannfagnaði inn ættarinnar.
Tekur þú kannski lagið í fermingarveislunni hjá syninum ?

Þetta lagði Inga í belginn
11.01.2008 08:27:23
Gaman að fylgjast með framförunum. Þessari ágætu hugmynd að afmælisgjöf var "stolið" í haust og nú eruð þið tvær frænkur í skólanum og andið hvor í kapp við aðra, reyndar ekki hjá sama kennara.
Kannski verður boðið upp á dúett á ættarmótinu?
Þetta lagði Nína í belginn
11.01.2008 11:23:32
Svo þú uppskerð kannski rosa magavöðva í kaupbæti :P
Þetta lagði Marta í belginn