Rakel bloggar

 

Amma 85 ára!

Já hún Amma Þura varð 85 ára gömul í dag! Við sem búum hér fyrir sunnan hittumst í Faxahvarfi hjá Atla og Sigrúnu í kvöld - og buðum afmælisbarninu að vera með!! Lilla eldaði kjötsúpu og við komum með sætindi - því ekki má maður nú fara úr æfingu svona rétt eftir jólin!

Fyrsti vinnudagurinn var líka í dag! Úff það var erfitt að vakna svona um hánótt!

Læt fylgja með nokkrar myndir síðan í kvöld.

 

Hér erum við amma saman.

 IMG_4521.JPG

 Svo eru það Lilla, eldri dóttir ömmu og afmælisbarnið. Olga og pabbi fjarri góðu gamni!

IMG_4522.JPG

Barnabarnabörnin á svæðinu sungu afmælissönginn fyrir hana.

Efstir frá vinstri á myndinni eru Anton Örn Atlason, Aron Elís Þrándarson og Ómar Örn Reynisson.

Í næstu röð eru svo Margrét Sif Atladóttir, Sölvi Þrándarson, Diljá Björk Atladóttir og Kolbrún Olga Reynisdóttir.

Fremstur er svo Elmar Logi Þrándarson..... sem varð reyndar ósáttur við þessa myndatöku því ég hafði gleymt að segja  SÍS!!

 IMG_4511.JPG

Ófædda barnabarnabarnið var svo myndað með foreldrum sínum!! :)

 IMG_4518.JPG

 Amma var bara ánægð með daginn og kvöldið þó hún hafi ekkert vilja halda upp á þetta! Hún var svo enn að taka við símtölum þegar hún fór út úr dyrunum!

 

 

 


Leggja orð í belg
3 hafa lagt orð í belg
04.01.2008 11:03:27
Til hamingju með hana ömmu þína!
Svo er glæsilegt hvað þú ert orðin dugleg að setja inn myndir í bloggið :) Vissi að þetta yrði leikur einn!
Þetta lagði Sigurrós í belginn
04.01.2008 18:01:17
Þessi dagur virðist hafa farið vel fram. Hélt upp á hann með því að liggja í bælinu með hálsbólgu og önnur ónot. Ef beyting verður hlýtur hún að verða til batnaðar.
Þetta lagði Mummi í belginn
05.01.2008 23:30:34
Afmæliskveðja
Afmæliskveðja til ömmu frá okkur í Nökkvavoginum.
Það er ekki að spyrja að þessum gömlu Barðstrendingum - því flottari sem árin verða fleiri!!!
Þetta lagði Nína í belginn