Rakel bloggar

 

Endurfundir

Þá er vinnuvikan framundan og fyrr en varir verða komin jól. Sá á bloggsíðu Friðgeirs og Ingu að þau eru farin að telja niður!

Ég var hins vegar í mjög skemmtilegum félagsskap um helgina. Við hittumst vinkonurnar að vestan, ég , Edith, Sigga, Guðrún, Nanna og Ásta. Við erum búnar að tala um þetta nokkuð lengi og dagsetningin var ákveðin fyrir löngu síðan. Guðrún og Jón létu Íslandsferð ársins bera upp á þessa helgi og Jón gisti með krakkana hjá Friðþjófi á meðan við stelpurnar fórum í gegnum skipulagða dagskrá og móttöku á Gamla Rifi.

Sigga var búin að setja niður hugmynd að skemmtilegum degi og huggulegu kvöldi fyrir okkur - sem allt gekk eftir! Við fórum í sauna um borð í fiskibát, fórum í verslunarferð í búðina Blómsturvelli á Hellissandi, borðuðum góðu súpuna á kaffihúsinu og fengum leynigest í heimsókn - sem reyndist vera ljósmyndari sem tók hópmyndir af okkur vinkonunum! Það verður gaman að hvað kom út úr því!

Myndaalbúm, sendibréf og dagbækur vöktu mikla lukku hjá okkur og margt rifjaðist upp síðan fyrir 25 árum eða svo!!! Karókísöngur, skemmtiatriði og samkvæmisleikur voru líka á dagskránni.

Ég var blekkt til þátttöku í leiknum - sem stelpurnar höfðu undirbúið þannig að við Guðrún og Ásta áttum að leika dýr sem sem hinir áttu að giska á hver væru. Hinar voru fljótar að finna út hvað stelpurnar léku en gekk ver með mig. Svo giskuðu þær og giskuðu og grunlausa ég lék og lék....og fattaði ekki fyrr en löngu eftir leikinn að ég hafði verið höfð að spotti.

Svo veittu þær verðlaun þeim sem verst gekk að leika. Verðlaunin reyndust svo vera afmælisgjöfin mín frá þeim - en Edith var sú eina sem komst þegar ég hélt upp á afmælið mitt í haust! Þær höfðu sem sagt plottað allt saman og ég sem er nú vön að sjá allt svona plott fljótt og örugglega kom alveg af fjöllum!

Við sváfum svo allar í einni flatsæng í kaffihúsinu ......en sváfum reyndar ekkert út því Nanna þurfti að taka Baldur klukkan 11 og Sigga skutlaði henni í Stykkishólm.

Virkilega skemmtilegt!!!


Leggja or belg
10 hafa lagt or belg
08.10.2007 16:51:25
Svakalega hefur þetta verið skemmtilegt hjá ykkur ;) Hittumst vonandi í ræktinni einhvern daginn en núna á aðferðafræði hug minn.
etta lagi Særún belginn
09.10.2007 16:33:20
innlit
Sæl granni og frænka,

Ekkert smá krúttaraleg mynd af ykkur feðginum :)
Og ennþá svona krúttleg
kveðja,
Gyða Björk
etta lagi Gyða Björk belginn
10.10.2007 18:32:18
Smá kvart
Eftir að þú settir inn þessa sætu mynd af ykkur feðginum er síðan þín svo feit að ég þarf að skrolla fram og til baka til að geta lesið hana. Fyrir utan að þú sjálf skyggir alltaf á textann í nýjustu færslunum. Er ég ein með þetta vandamál?
etta lagi Marta belginn
10.10.2007 22:14:23
Kvarta líka
Þetta hefur verið frábær ferð, svona verður maður að gera, til að fá smá frí.
En ég þarf líka að skrolla fram og til baka.
etta lagi Igga belginn
11.10.2007 22:06:37
Hver er þessi Baldur?
Þú þarft að laga myndina, við erum búin að ná þessu með pungsköfuna!


etta lagi Sverrir belginn
11.10.2007 22:54:28
Mín tölva er alveg með allt á hreinu.....ekkert skroll þar! Hvað segir vefstjórinn minn?
(ég er sko bæði með vefstjóra og skólastjóra)
etta lagi Rakel belginn
11.10.2007 22:56:13
Æ - Sverrir, því gat þetta ekki verið Akraborgin!
etta lagi Rakel belginn
14.10.2007 22:41:03
Skrollið og orðabelgurinn
Í minni tölvu þarf að skrolla þar til orðabelgurinn hefur verið opnaður - þá skreppur textinn saman!
etta lagi Nína belginn
18.10.2007 12:37:50
Þegar mynd er svona stór þá sprengir hún utan af sér. Þegar Rakel verður hins vegar búin að blogga meira þá færist pungsköfufréttin út af forsíðunni og þá er ekki lengur vandamál ;)
etta lagi Sigurrós belginn
18.10.2007 20:33:16
..en hún er því miður svo upptekin af því að undirbúa jólin að hún hefur engan tíma til að bloggast!
etta lagi Marta belginn