....................lét ég verða af því að drífa mig í líkamsræktina! Þung skrefin urðu léttari þegar ég sá að Særún frænka var líka mætt! Alltaf gaman að vera með einhverjum sem maður þekkir.
Framundan er reyndar stækkun á líkamsræktarstöðinni okkar með tilheyrandi verðhækkunum - reiknaði út að mitt gjald kemur til með að tvöfaldast! Kannski svolítið mikið þegar maður rétt kemst tvisvar í viku. Það verður svolítið erfitt að koma þessu inn í rútínuna hérna heima í vetur - án þess að yngri drengirnir séu einir heima!
Hækkunin er svo réttlætt með því að þarna verði allt "nýtt" og auk þess njóti maður aukinna þæginda í formi gufubaða og heitra potta. Verst er að þegar tíminn er lítill og börnin bíða heima eru minni líkur á að maður nýti sér allt þetta "spa" sem á að vera svo flott og fínt!
Einhvers staðar verður maður þó að vera - ekki hefur dýnan og orbinn virkað fyrir mig hingað til! Ég skrifaði því undir nýjan samning við stöðina í dag sem gerir það að verkum að ég þarf bara að greiða 1990- á mánuði fram til áramóta.
Dálítið skondin sárabót þegar litið er til þess að þá hækkar gjaldið upp í 5900- á mánuði.
Eins gott að ég fái þá sixpakk!
6 hafa lagt orð í belg