Hún er hérna ennþá! Hérna til vinstri!
Hvað um það! Það var bongó blíða í Fossvoginum í dag. Við erum ekki bún að endurnýja sólvörnina fyrir sumarið svo hreinninn Rúdolf myndi ekki skera sig úr á heimilinu núna!
Igga og börnin kíktu í heimsókn og Benni varð eftir og gistir hjá okkur í nótt. Aron gistir hjá vini sínum svo Benni skríður bara upp í Arons ból.
Blíðan byrjaði reyndar á pallinum hjá mér í gær þegar ég bauð nokkrum samstarfskonum í mat. Við fengum okkur fordrykk og forrétt úti á palli, og fórum svo inn í gæsabringumáltíð að hætti Þrándar. Smakkaðist allt ljómandi vel!
Var að kíkja á dagatalið og fann út að við erum með plön fyrir allar helgar fram til 15. ágúst! Það finnst mér alveg einstaklega fráhrindandi tilhugsun!
2 hafa lagt orð í belg