Hef verið að spá í að flytja mig um set á netinu. Mér finnast bloggsíður með heimatilbúnu umhverfi svo flottar.
Held að ég verði að láta verða af því fljótlega. Á meðan ég var að skrá mig inn núna horfði á mig lostafull kona í skjóllitlum brjóstahaldara. Á myndina var letrað "dirty" eitthvað og vísað á heimasíðu!
Þetta er nú ekki hægt!
Annars er alveg brjálað að gera hjá mér núna. Var í skólanum til að verða 7 í kvöld að sauma saman húfur í sjálfboðavinnu.
Í lokin: Ég fór snemma að sofa á kosninganóttina - Þrándur vakti aðeins lengur og þegar hann fór að sofa var stjórnin fallin! Þetta var svo staðfest á forsíðu Fréttablaðsins morguninn eftir. Það var ekki fyrr en í kvöldfréttunum að ég heyrði sannleikann
Ég sem var orðin verulega spennt!
3 hafa lagt or belg