Þá er fyrsti vinnudagurinn liðinn! Hann var nú ósköp ljúfur enda ósköp ljúfir þeir 15 nemendur sem mættir voru
Minn yngsti hér heima var þó áfram harður í horn að taka. Fannst hann hafa verið gróflega gabbaður þegar miðjumaður bauð honum að horfa á Madagaskar með sér. Hafði nefnilega spurt hvort það væri ekki örugglega einhver vondur í henni og fengið jákvætt svar!
EN - ÞAÐ ER ENGINN VONDUR Í MADAGASKAR!
Ótrúlegt!
3 hafa lagt orð í belg