MMM! Það er svo gott að hafa ekkert sérstakt að gera!
Mamma og pabbi komu suður í gær til að vera í fermingarveislu á fimmtudaginn. Við vöknuðum í morgun og vorum lengi í morgunkaffinu. Svo lengi að það rann saman við hádegishressinguna!
Fórum þá í göngutúr í hressandi vorveðrinu. Gengum um Elliðaárdalinn svona rétt til að sýna utanbæjarfólkinu eitthvað meira en Kringluna og Smáralind!
Það vill nefnilega oft verða þannig, að þegar við förum út á land er alltaf farið í gönguferðir úti í náttúrunni, en þegar aðrir koma í bæinn er helst gengið um í verslunarmiðstöðvum. Fólk fer svo heim til sín uppgefið á sál og líkama og skilur ekkert í því að fólk geti búið í Reykjavík!!
Sverrir, Igga og co. eru væntanleg til okkar í mat í kvöld.....verðum með humarsúpu og sitthvað fleira!
Það er svo sem alveg nóg að gera, bara ekki þetta mínútuspursmál sem maður lifir eftir í ævistarfinu! Og þá hvílist maður!
2 hafa lagt orð í belg