Rakel bloggar

 

Árshátíð og fleira

Við hjónin skiptum liði í gærkveldi til að láta sjá okkur á sem flestum stöðum! Þrándur fór í fimmtugsafmæli Eddu mágkonu sinnar en ég fór á árshátíð skólans.

Fyrrnefnda veislan hefur sennilega haft tvöfalt fleiri gesti en sú síðarnefnda auk þess sem þar var hljómsveit sem spilaði fyrir dansi en plötusnúður á fámenna staðnum. Plötusnúðnum tókst misvel að "lesa salinn" - lögin voru ýmist of hæg eða þung að margra mati!

Þó er eitt sem snúðarnir gerðu alltaf í "gamla" daga og er sem betur fer ekki lengur - það er að tala á milli laga, banna fólki að setjast og drífa svo alla í kokkinn í þokkabót!

Sigurrós og Arna, ólétturnar okkar í skólanum létu sig ekki vanta þó að margir aðrir hefðu verið vant við látnir......og meira að segja ætlaði Sigurrós að fara á aðra árshátíð núna í kvöld.

Barninu hefur sennilega ofboðið þetta skemmtanafár og flýtti sér því í heiminn um kaffileytið í dag! Barnið er stúlka og bíð ég spennt eftir myndum - svona eins og "ömmur" eiga að gera!!!


Leggja or belg
3 hafa lagt or belg
11.03.2007 17:58:40
Já núna er fólk hætt að koma í heimsóknir til að skoða litlu börnin, fólk kíkir bara á myndirnar sem eru settar á heimasíður eða blogg foreldranna.
Ég segi eins og ein gömul sem við þekkjum „það kemur enginn og heimsækir mig..."
Kveðja, SverrirGuðm
etta lagi Sverrir Guðmundsson belginn
11.03.2007 18:21:52
Verð nú að gera bragarbót á því hið fyrsta....
etta lagi Rakel Guðmundsdóttir belginn
20.03.2007 22:23:56
Frábært Sigurrós komin með litla skjóðu !
Kíki á hana á netinu, það getur líka verið gott þegar fólk býr langt í burtu ( Sverrir ) En kemur auðvitað ekki í staðin fyrir það að hitta barnið og foreldrana.Vonast til að sjá Sverri frænda og alla fjölskylduna í náini framtíð.
Hvernig er þetta með þig RAKEL er von til þess að sjá þig í sjónvarpsfréttunum næst?
Nanna var í gær og Örn í kvöld. Skiptineminn skilur ekkert í hvað við hjónin þekkjum merkilegt fólk.
Hey this is my frend!!
etta lagi Sigga frænka belginn