Nú er febrúar brátt á enda..............ótrúlegt hvað fyrstu tveir mánuðir ársins líða alltaf hratt! Reyndar er frítíminn hvað fljótastur að líða og liðin helgi ekki undanskilin.
Fór í boð til Mörtu henríettu á föstudagskvöld. Hún eldaði ómótstæðilega kjúklingasúpu sem ég þarf endilega að prófa að elda hér heima!
Á sunnudaginn fórum við fjölskyldan í gönguferð um Elliðaárdalinn. Veðrið var mjög fallegt - en núna þýðir það víst meiri svifryksmengun! Það borgar sig því ekki að fara út og "teyga að sér" fríska loftið!! Við komumst þó öll heim án teljandi andnauðar!
Ég kíkti svo á krúttið hann frænda minn í Skógarásnum í gærkvöldi. Hann er eins og lítil reið moldvarpa - setur í brýrnar því honum finnst illa farið með sig í þessum bleyjuskiptum og er rétt farinn að opna augun Hann er að byrja að kíkja á heiminn.
6 hafa lagt or belg