Rakel bloggar

 

D bekkur hittist

Við sem vorum saman í bekk í Kennó fyrir nokkrum árum hittumst hérna heima hjá okkur Þrándi í gær. Við stelpurnar höfum reyndar haldið saumaklúbba nokkrum sinnum á ári síðan við útskrifuðumst og ef ég man rétt þá mættu strákarnir´líka í fyrsu klúbbana. Núna hittumst við með mökum okkar og áttum frábæra kvöldstund. Allir komu með eitthvað á sameiginlegt hlaðborð - eitthvað sem virkar alltaf vel - verður alltaf veisluborð! Kalt hvítvín, notalegt rauðvín og góður öllari, opið út á svalir þar sem maður beinlínis horfði á sumarið koma, og svo huggulegur arineldur og spjall í lokin. Synd að strákarnir/kallarnir í bekknum skyldu allir klikka á því að mæta! Sá eini sem boðaði komu sína hefur guggnað á síðustu stundu. Þó held ég að þeir makar sem mættu í gær geti nú staðfest það að engin okkar er beinlínis hættuleg!

Við hittumst síðast fyrir þremur árum, ég held að við verðum að gera þetta árlega þetta er svo skemmtilegt!


Leggja or belg
3 hafa lagt or belg
07.05.2006 17:05:04
Það er bara algjör snilld að hitta bekkjarfélagana - eins og þú sérð á mínu bloggi þá var ég í þeim gír líka í gær en það-r var reyndar verið að halda upp á 20 ára gagnfræðaafmæli sem var náttúrlega bara gaman.
etta lagi Særún Ármannsdóttir belginn
15.05.2006 13:59:13
Hæ, já þessi reunion eru snilld. Var sjálf að halda upp á 25 ára útskrift úr grunnskóla, gamla konan ;), og það var ótrúlega gaman. Sérstaklega gaman að sjá hvað sætu strákarnir voru orðnir lummó og þessir sem ekkert var varið í orðnir flottir, hehe. Sjálf er ég náttúrulega jafn glæsileg og alltaf og þarf ekki að hafa áhyggjur af því að einhver tali svona um mig ;)
etta lagi Bryndís belginn
17.05.2006 22:29:15
En sniðugt! Varst þú líka í D-bekk í Kennó? :) Þá erum við í stíl! ;)
etta lagi Sigurrós belginn