Ég eignaðist litla frænku um helgina sem á að heita Rakel - í höfuðið á mér! Nú hefur pressunni verið létt af sonum mínum sem geta óhikað skírt þeim tískunöfnum sem verða þegar þar að kemur!!! Segi nú bara svona...
Litla frænkan býr reyndar svolítið langt í burtu eða í Kaupmannahöfn og er dóttir Guðrúnar frænku minnar og Jóns, sem eiga fyrir hann Frey og hana Helgu. Það verður auðvelt fyrir mig að muna fæðingardaginn hennar (svo óminnug sem ég er) þar sem Elmar á afmæli daginn eftir!
Við héldum einmitt upp á afmælið hans á laugardaginn og í dag komu þeir sem ekki komust daginn áður - svona til að hafa endalaust fjör.
Mamma og pabbi komu í bæinn og það endaði með því að ég fór með þeim á þorrablót með gömlum sveitungum og bæjarbúum frá Patró. Það var mjög gaman að komast að því að maður kannast við marga þaðan þó maður þekki fáa - suma þurfti líka að horfa á um stund áður en rann upp fyrir manni hver var á ferð! Það hefði tekið sig upp gamall púki ef Edith og Sigga hefðu verið á staðnum
3 hafa lagt orð í belg