Rakel bloggar

 

Helgin

Úff - góður átdagur að baki! Fórum í afmæli til Tinnu frænku minnar en hún er orðin 4 ára. Spenningurinn eykst með hverjum deginum því nú veit Elmar að hann er næstur!

Við settum saman rúm fyrir hann sem var tilbúið í bílskúrnum og nú sofa drengirnir allir í sínu herbergi en Elmar er búinn að sofa inni hjá Sölva í tæpt ár. Helst myndu þeir allir vilja sofa í sama herbergi.......en sofnuðu þá kannski helst til seint að okkar mati.

Aron og Sölvi lesa nú öll kvöld, Sölvi klárar hverja bókina á fætur annarri og Aron er kominn langt með Eragon - væri kominn enn lengra ef það væri ekki "nördalegt" að lesa á daginn!! Sjálf er ég löt að lesa á kvöldin enda sjónvarpið mikill tímaþjófur og heldur manni föstum svo tímunum skiptir.

Framundan er svo vinnuvikan - fullt af prófum að fara yfir og skrá, foreldraviðtöl hjá eldri strákunum, kaffihúsaferð hjá saumaklúbbnum mínum og Henríettuklúbbur hjá mér á fimmtudagskvöldið, auk undirbúnings fyrir afmælisveislu hjá okkur á laugardag. Svo koma mamma og pabbi suður á föstudag til að vera á þorrablóti burtfluttra Patreksfirðinga/Rauðsendinga, en þar verður pabbi veislustjóri.

Svei mér þá ef þetta hljómar bara ekki eins og vika hjá Særúnu frænku!!! Wink


Leggja orð í belg
7 hafa lagt orð í belg
29.01.2007 22:41:42
já svei mér þá ég held bara að ég kannist við svona.
Þetta lagði Særún í belginn
31.01.2007 01:08:37
Hlakka mikið til að koma í Henríettu-hittinginn :)
Þetta lagði Sigurrós í belginn
31.01.2007 13:15:44
Hvað er eiginlega Henríuettuklúbbur? Skýring óskast.
Kv. Dísa forvitna
Þetta lagði Bryndís í belginn
31.01.2007 17:27:57
..bara fyrir innvígða..
Þetta lagði Marta Henríetta í belginn
31.01.2007 17:51:38
Af því að allt sem hér er skrifað er bara okkar á milli (var það ekki annars svoleiðis með þetta net?) þá eru Henríetturnar einn saumaklúbburinn sem ég er í - þar sem ekkert er saumað frekar en í flestum slíkum klúbbum.....
Þetta lagði Rakel Guðmundsdóttir í belginn
07.02.2007 14:46:19
Það minnir mig á frænkuklúbbinn sem dó nánast jafnhratt og hann varð til... það væri nú gaman að endurvekja hann þar sem það virðist vera orðið eitthvað svo langt á milli okkar allra ;)
Þetta lagði Bryndís í belginn
08.02.2007 23:25:31
Það líst mér vel á - á nú eftir að sjá hann frænda minn með berum augum!! Leyfum honum að herðast aðeins og kýlum svo á það!!
Þetta lagði Rakel Guðmundsdóttir í belginn